svennsland
26.11.2006 02:38:51 / svennzo

Dimmisjón

úff hvar á ég að byrja?? Ef eitthvað er snilld þá heitir snilldin Dimmsjón með stóru D-i. Þeir sem þekkja mig nokkuð vel vita að morgnar eru leiðinlegustu tímar dagsins að mínu mati. Ég er svo morgunfúll að ég gæti drepið fíl með fýlunni. En þegar dimmisjón dagurinn rann upp þurfti aðeins eitt "bíb" á vekjaraklukkunni að ég rauk á fætur án þess að þurfa að nota snooz takkann neitt, og það klukkan 5:00. En svo um 6 leytið lá leiðin í morgunparty þar sem raddböndin voru þanin nágrönnum til mikillar lukku. Þarna voru komnir sirka 30 Sylvesterar ( kíkjiði á myndaalbúmið ef þið vitið ekki hvað það er) að drekka ópal og syngja, mjög gaman. Eftir það lá leiðin upp í skóla þar sem við sprelluðum í sirka tvo tíma. Þar sungum við um kennarana, fengum Einars-Birgirs medalíur og heilsuðum upp á þá tíma sem við vildum. Ég ákvað meðal annars að fara í auglýsingarsálfræði tíma og kenna krökkunum allt um kyntákn. Eftir sprellið í Flensunni var haldið á Fridays í Smáralind. Við borðuðum matinn okkar og röltuðum örlítið um typpalindina, en fórum fljótt því öryggisverðirnir tjáðu okkur að það væri búið að kvarta undan okkur! Hvað er eiginlega að fólki, hefur það aldrei séð 30 ungmenni í grímubúningum á föstudögum áður!! Thja maður bara spyr sig. En leiðin lá allavega til miðbæjar Reykjavíkur. Þar ætluðu myndavélarnar hjá útlendingum ekki að hafa við að vista myndina inná digital kubbinn í vélinni, þeim fannst fannst þetta mjög sniðugt og fara nú áræðanlega hvert til síns heimalands og kenna krökkum þar þennan yndisfríða sið, að mæta full í grímubúningum í bæinn um hábjartan dag.
En ekki gátum við veitt miðbænum þann heiður að fá að hafa okkur hjá sér því keiluhöllin beið eftir okkur. Þar hittum við aðra dimmitera og skemmtum okkur mjög vel. Síðan lá leiðin heim að sjæna sig allan til fyrir kvöldið.
Kvöldið hófst mjög skemmtilega, fordrykkur og fínn klæðnaður, æðislegur matur og fyndinn veislustjóri. En þegar líða fór á matinn fór hávaðinn að rjúka upp og sumir voru orðnir hressari en aðrir. Ekki leið á löngu þar til að greddan fór að tala hjá kennurunum og ruku þau öll til í smokkaskál sem var þarna og tæmdu hana á 10 sek. ekki slæmur árangur þar...En svo var bara djamm út kvöldið og mikið um dans og dýrðir. Þessi dagur heppnaðist mjög vel í alla staði og er ég mikið að spá í að skrá mig  í FG eða einhvern annan skóla til að klára stúdentinn aftur til að geta dimmiterað!
Endilega kíkið á myndirnar og þá fáið þið smá nasaþef af deginum.

Svenni

» 6 hafa sagt sína skoðun

15.10.2006 22:52:33 / svennzo

Skólimóli

good morning sunshine, þessi orð eru mér ofarlega í huga! pæliði aðeins í þeim og kommentið svo um þau.

En já. nýr dýragarður hefur verið opnaður, hann er staðsettur heima hjá mér. Þannig er mál með vexti að við eigum tvo hunda fyrir ( neinei einn var ekki nóg ) og svo er allt í einu kominn einhvern ókunnugur köttur sem enginn veit hver á og er búinn að eigna sér bílskúrinn okkar. 500 kall inn og ekkert kjaftæði, komið ef þið þorið!

En fleyri undur og stórmerki eiga sér stað og í framtíðinni mun fólk minnast þennan dag sem merkan dag í mannkynssögunni. Ég tók til !   Já gott fólk u heard me!

listi yfir það sem ég fann í herberginu mínu undir öllu draslinu:

Þvottabali

3 ónýtar gallabuxur

ryk

ryk

ryk

jakkaföt

úlpa

póstúlpa

tvær pósttöskur...

...enn með pósti í

óhreinatauskörfu

dverg

fjölskyldu sem reyndi að smygla sér til landsins

mammút

Þetta kennir mér kannski að taka oftar til....


» 6 hafa sagt sína skoðun

23.08.2006 13:57:03 / svennzo

Long time no c

hellú, hvað segir fólkið þá? Allavegana segi ég allt stórfínt! Skólinn loksins byrjaður og þá kemst vonandi einhver regla á líf manns, maður fer vonandi að chilla á djamminu örlítið :S spánn var annars geggjaður, heittheittheitt og djammdjammdjamm. Þar djammaði maður svo af sér allt saman og kom heim á fimmtudegi fyrir versló, og fór svo beint á djammið um versló, geggjuð helgi þar í bænum með krökkunu, 11an klárlega að gera sitt og saltir hamborgar hafðir í hávegum!!! Svo leið vinnuvikan með sínum leiðindum í póstinum og ég ákvað að hætta þar eftir þá viku, alveg kominn með ógeð. Djammaði meir helgina eftir það og chillaði svo í vikunni, svo kom enn meira djamm þannig að ekki lata ykkur bregða þótt þið sjáið mig á snúru einhvers staðar í þurrkun.... En skólinn já...guð minn góður mér leið eins og busa þarna inni, ég rataði EKKERT!!! Þessi nýji skóli alveg að gera sig, en djöfull er allt breytt, ég þekkti ekkert þarna...og nánst engann.... :(svo margir busar.... en það er allt í´góðu, kallinn að fara að klára og svona :D En hvað segiði svo um að fara að gera eitthvað? Grill og bjór, er það ekki málið?? látið vita... bæbæ

» 4 hafa sagt sína skoðun

29.07.2006 19:23:51 / svennzo

Costa del sol

Djamm, sól, strond, djamm, matur, bjor, kokteilar, strond, djamm......

Spann i nokkrum ordum... :D:D:D


» 4 hafa sagt sína skoðun

19.07.2006 17:58:56 / svennzo

Spánn Beibí

Já þið heyrðuð rétt lömbin góð, ég ætla að heiðra spánverja með komu minni á morgun ( fimmt.). Það mun koma kreppa í kjölfarið, kokteilmarkaðir heims munu klárast því ég mun eflaust klára þá, og vonandi fá samning hjá framleiðendum Malibus vínsins:D En já þetta verður geggjað, ströndin, sólin, hitinn, bjór/malibu/kokteill og djamm. How sweet can it be!

Ég vildi bara láta ykkur vita....have fun á klakanum :D


» 4 hafa sagt sína skoðun

08.07.2006 18:54:01 / svennzo

Góðan dag

já margblessaðan og allt það.....núna er ég búinn að gefast upp á að tala um veðrið, það er svo fljótt að breytast að maður fær hausverk á þessu öllu saman! En ég vildi bara láta ykkur vita....spánn eftir tæpar 2 vikur :D svaka stemming þar náttúrulega. Ég sá dáldið fyndið um daginn, furðulegt þetta gamla fólk. Þaning var mál með vexti að ég lagði bílnum mínum við gangstétt útá álftanesi og var að bera þar út. Svo er ég að ganga götuna til baka og sé þá að það er bíll fyrir aftan minn bíl, og það er kveikt á bílnum og gamall kall undir stýri. Ekker mál með það, ég held bara að hann sé að bíða eftir einhverjum í húsinu eða eitthvað álíka og ég held bara áfram að klára götuna. Svo kem ég í bílinn minn eftir sirka 10 mín. og gamli kallinn er enn fyrir aftan mig, með kveikt á bílnum.... Ég starta mínum bíl og keyri af stað og þá loksins heldur gamli kallinn áfram. Hann hefur semsagt verið að bíða eftir að ég færði minn bíl í 10 mín., hann fattaði ekki að keyra fram hjá honum.....ég segi nú bara greyið þessi kall. En svona er þetta, einhver kella að böggast á hansen, spurja hvort ég ætti ekki að fara heim að sofa, ég spurði bara á móti hvort hún þyrfti ekki að fara heim og fá sér að ríða, ég var að spá í að kynna henni fyrir gamla manninum, maður er soddann Dr.Love inní sér. En ég ætla í sturtu....bæbæ

» 2 hafa sagt sína skoðun

22.06.2006 11:26:56 / svennzo

spákall

wellwellwell, hvað sagði ég í síðustu bloggfærslu???  "Sólin mun koma", og hvað gerðist, næsta dag kom hún!! Þannig að ég ætla að gera smá tilraun hérna með spáhæfileika mína..........

Ekki örvænta lömbin góð, hitastigið mun rjúka upp í 30°gráður og sólin mun lita ykkur öll brún!

Núna er bara að bíða og sjá hvort þetta heppnast....

p.s.  ég ætla að bæta við...einhver góður vinur minn mun leggja milljón inná bankabókina mína..


» 8 hafa sagt sína skoðun

20.06.2006 11:48:03 / svennzo

Rigning smigning

ef að regndropar væru peningar værum við kæru íslendingar milljónamæringar, ef ekki milljarðarmæringar. 66°norður búðin er að stórgræða á þessu veðri sem á það til að fara fyrir brjóstið á íbúum landsins, og póstfólk er sko ekki þaðan undanskilið. En ég vona bara að það komi sól til að bæta þetta allt saman upp, við getum litið á þetta þannig að núna var rigning til að vökva allt saman og til að fullkomna verkið þarf sól, sem btw á eftir að koma! Svo að ekki andvarpa og gefast upp, hættið við að hugleiða sjálfsmorð eða aflimanir, sólin mun koma:D

En annars er allt gott að frétta. Dagarnir líða jafn hratt og candy flos ofan í littla feita krakka, og brátt mun ég liggja á ströndinni með einn, ef ekki tvo, kokteila í annari og bjór í hinni og sleikja sólina....já þið heyrðuð rétt, ég ætla að stinga ykkur af í 2 vikur ( nema þig brynja, sting þig ekkert voðamikið af...;) ). Ég skal alveg hringja í ykkur á hverjum degi og segja ykkur hitastigið og hvað það sé gaman á ströndinni ef þið viljið, bara látið mig vita.....En maður verður nú að vinna fyrir úglöndum þannig að ég verð eiginlega bara vinnandi næstu daga í sjoppunni og svo auðvitað í þrælaógeðinu (póstinum) næstu vikur, en það er bara ágætt, ég brosi vonandi um mánaðarmótin. :haha:

En ég þarf að fara, kveð að sinni..


» 4 hafa sagt sína skoðun

05.06.2006 17:42:48 / svennzo

Djammin...

Wellwellwell, þetta var nú meiri helgin. Ég var að vinna alla helgina á kvöldvöktum uppí sjoppu en ákvað samt að fara að djamma föst, laug og sunnudag eftir vinnu. Og sjittífokk hvað ég sé ekki eftir því. Algjör snilldardjömm, er búinn að dansa af mér fæturnar og örugglega eitthvað meira en það. Á laugardeginum var ég reyndar rekinn úr jakkanum í röðinni á pravda, var víst ekki nógu flottur fyrir staðinn, og ég bara fokk nei það er ískalt úti, dyravörðurinn var sko gella og hún var eflaust bara að leita eftir gaur að strippa fyrir hana......" hey þú, farður úr jakkanum :P " jahérna hér....

en svo var sunnudagskvöldið tær snilld, dans einkenndi það kvöld ásamt öðru sem þið verðið bara að spyrjast fyrir um, en allavega fékk ég allt aðra sín á lækjartorgið eftir þetta kvöld! en núna verður ekkert djamm fyrr en útá spáni....

Ég kveð að sinni, þarf að fara uppá vog....


» 8 hafa sagt sína skoðun

28.05.2006 13:41:10 / svennzo

Svíþjóð

Goden dag mine damer og herrer, þá er maður búinn að láta reka sig frá svíþjóð og fær ekki að fara í IKEA landið aftur. Neinei þetta er ekki svo slæmt, en ég er allavega kominn heim úr þessari kórferð. Og það gerðist margt og mikið í þessari ferð. Við urðum auðvitað eins og fífl fyrir framan konungshöllina, urðum að stríða þessum gaurum með blikkdollur á hausnum A.K.A lífvörðunum örlítið. Sumir stríddu þeim hins vegar aðeins of mikið og það kostaði þrjá vopnaða menn sem fylgdu nokkrum ungmennum út af planinu og biðu svo við næsta horn með byssurnar reddí ef þessi ungmenni skildu koma aftur, og við hin sem urðum eftir grenjuðum auðvitað úr hlátri. Einnig fékk einn karlpeningurinn í ferðinni kæru á sig fyrir kynferðislega áreitni, stelpan sem kærði hann var blindfull og hún var að brjótast inní svefnstaðinn okkar og var eitthvað að fikta í dótinu okkar og henni var hent út.....tvisvar...og eitthvað varð hún fúl og ákvað að kæra. En auðvitað voru engir áverkar á þessari heimsku belju til að sanna eitt né neitt þannig að ég held að þetta sé allt í gúddí, vonandi! Tónleikarnir okkar voru svo á uppstigningardag, ég held að þeir hafi heppnast ágætlega, nema eitt eða tvö lög, en það skiptir ekki öllu máli, svo eru tónleikarnir okkar hérna heima næsta fimmtudag, 1 júní, allir að mæta! Það verður brjálað stuð þá. En já aftur að svíþjóð. Við ákváðum að krassa einhvern bar kvöldið eftir tónleikana, við mættum sirka hálf átta og fólkið inná staðnum bara whatta fuck vitiðið hvað klukkan er!! En þau báðu okkur um að syngja og við tókum partysmellinn okkar " rauði riddarinn" og allt varð kreisí, þetta var ógeðslega skemmtilegt kvöld. Ég kíkti svo seinna um kvöldið á einhvern djazzstað en þetta kvöld var samt enginn djazz heldur var "cuban nigth" eða eitthvað þannig. Og vá þvílík snilld, geðveikt salsa tónlist og outfittið á fólkinu þarna....hvít jakkaföt og hvítir hattar og annað sem var bara snilld. Mér leið eins og kjána þarna samt, því þarna inni voru bara professional salsa dansarar nema við 5 sem voru þarna úr kórnum ( nema auðvitað elva okkar:D ) en við ákváðum bara að go for it og fórum á dansgólfið og gerðum bara eitthvað, það var spes......en samt brjálað gaman. En þið verðir bara að spurja mig um restina, allt dramað og allt hassið og allt þetta dót sem ég nenni ekki að skrifa um. Hilsen

» 5 hafa sagt sína skoðun

13.05.2006 15:10:57 / svennzo

....

hæhó, whats up folks? Sumarið er víst bara komið með 7 stiga hita og sól. Það er ekki lengur hægt að ganga úti án þess að sjá fólk með spegla undir andlitinu á sér til þess að worka tanið meira,  furðulegt þetta fólk stundum..... og speglarnir hafa víst fokið út í speglabúðunum, ég ætti kannski að fá mér eina til tvær speglabúðir, þá erum við að tala um peninga!  Þá getum við öll setið úti með skrítna fólkinu að worka tanið 8)   En annars er ég að vinna hjá póstinum og svo bara uppí sjoppu as usual, svaka næs hjá póstinum, ég er svo mikil sleikja að núna fæ ég bara að krúsa á huge ass bíl allan daginn að skutla einhverju fólki, svaka stemning, ef ykkur langar semsagt á rúntinn á morgnanna þá bara call me :D Svo er bara djamm inná milli, já og svo kóræfingar....maður verður nú að standa sig út í sverige, ekki annað hægt! Annars er ég voðalítið spenntur fyrir þeirri ferð, svona er maður skrítinn að vera ekki spenntur fyrir útlöndum. En hvað get ég sagt meira...?

Dökkur Guinnes er ógeð, næstum jafn mikið ógeð og túnfiskur...

uuuu.....ég held að þetta sé allt...

sjáumst úti með speglanna!


» 0 hafa sagt sína skoðun

28.04.2006 19:38:12 / svennzo

WC-WC-WC-WC-WC-WC-WC-WC-WC-WC-WC-WC-WC-WC-WC-WC-WC-WC-WC-WC-WC-WC

Góðan og blessaðan, buenas dias, bonjour, dobry den og þar framan af götunum. Veðrið leikur við landsmenn þessa dagana, mikið þó i snúsnú og handbolta, skrítið þetta veður hvernig það velur leikina. En nóg tal um veður og tölum um skeinipappír. Lets face it, öllum vantar hann og öllum finnst leiðinlegt að kaupa hann útí búð og burðast með hann heim. Ég ætla að vera svo elskulegur að bjóða ykkur þannig til sölu. 64 stykki ( ársbyrgðir, samt ekki hjá sumum....) og þær eru í mýkri kanntinum og dáldið mikið á þeim á 3900 kell. ( er að selja fyrir kórinn) svo að people ekki segja að ykkur vanti ekki þetta dót, skiljiði eftir comment og ég bjalla í ykkur um hæl!!! Svenni kveður

» 4 hafa sagt sína skoðun

14.04.2006 01:56:20 / svennzo

Ríddu mér....

að heyra þessi orð koma frá gömlum manni fær mann til að fyllast viðbjóði og deyja úr hlátri, á sama tíma. Þið sem eruð búin að lesa fyrstu línuna haldið núna örugglega að ég hafi verið að gera eitthvað ógeðfelt með gömlum ljótum kalli....en ekki örvænta, ég var bara að vinna uppí sjoppu:!: Þannig er mál  með vexti að við erum að selja allar VHS myndirnar uppí sjoppu og þennan dag kemur einn ógeðslegur, gamall og blindfullur kall inn og spyr mig og stelpuna sem var að vinna með mér : eigið þið nokkuð myndina "ríddu mér" til sölu, mig langar svo óskaplega mikið að sjá hana? Bara við að heyra þessi tvö orð koma frá gömlum kalli fékk mig til þess að setjast á gólfið og springa úr hlátri, innyfli út um allt og allt í blóði....thja kannski ekki alveg svo slæmt en allavega mikill hlátur. Fólkið sem var inní sjoppunni hélt örugglega að kannabis efni væri besti vinur minn eða eittvhað...heimska fólk. Þetta var bara fyndið!

annars er voða lítið að frétta, ég er byrjaður aftur að vinna hjá póstinum:( er alveg að rotna þar en það er bara stemning, einhvern veginn verður maður að vörka tanið í sumar með því að vinna úti... Svo er bara eitt próf og 2 ritgerðir og þá er sumarfríið alveg komið í skólanum:haha: svo er það svíþjóð og svo vonandi spánn líka, þannig að ef ég á að smylga innflytjendum inn fyrir ykkur þá bara call me!

En koddinn minn er eitthvað að kalla á mig heyrist mér, ég ætla að fara að sinna honum. Au revoir.


» 4 hafa sagt sína skoðun

29.03.2006 09:22:19 / svennzo

Dagga

sko dagga mín, hættu nú að reykja hass, þetta er orðið hætturlegt og ég skil ekki orð af því sem þú ert að segja. Þeir sem vita ekki um hvað ég er að tala kíkjið á kommentið frá döggu úr síðustu færslu...


» 4 hafa sagt sína skoðun

21.03.2006 13:26:45 / svennzo

löglegt eður ei....

Bonjour mes amis, comment allez vous aujourd hui??

Ég lennti í dálítið skringilegu atviki í gær. Þannig var mál með vexti að gamall kall með loðið nef kom inn og glápti á mig ( svona eins og hann væri á hassi) og spurði hvort hann mætti fá einn hamborgara, því hann vissi ekki hvað honum langaði í meir ( já hann orðaði þetta svona, dont ask). Því næst spurði hann hvort hann mætti taka hamborgarann með heim, " er það nokkuð löglegt" spurði hann svo og glápti enn meira. Um það bil þarna dó ég úr hlátri, man ekki hvað ég sagði við hann. En svo stóð hann bara þarna inni með matinn og ég kallaði á stelpuna sem var að vinna með mér (kallaði "Aldís") og þá heyri ég að kallinn svarar mér alltaf þegar ég kallaði á stelpuna. Aftur missti ég mig úr hlátri yfir kallinum og gat þess vegna ekki afgreitt neinn sem kom inn, því miður fyrir littlu krakkana sem komu inn og flúðu svo þegar ég var búinn að rétta þeim draslið sem þeir voru að versla, þau tóku einu sinni ekki afganginn sinn....lucky me. En svona er þetta bara. Ég fór samt að pæla, er þetta ég í framtíðinni???? Gamall kall með loðið nef ( sko loðið utan á) og held að ég heiti Aldís?? Guð hvað mig hlakkar til, ég ætla að gerast þá sjoppuhangari ef ég verð svona eins og þessi kall!

En jæja ef þið viljið vera með í þessu gengi mínu sem ég ætla að stofna á eldri árum þá bara commentið þið og ég sé til hvort þið megið vera með;)

sjáumst.


» 12 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2